30.9.02

Góðan daginn daginn daginn....Nýr dagur...alltaf sama martröðin aftur og aftur....
Jæja..hmm....ég er víst í skóla..og ætti að vera dugleg við skriftir....en ég er algjörlega andlaus
og get varla beðið eftir því hvað gerist í "Eftirlifandanum nr 5 " í kvöld ...nú nú nú og svo er það göngukvöldið..ÓGURLEGA
hjá vinkonunum....og... LILJA RÓS! þú ert líka að fara með!!!!

Gönguhópurinn "Dvergarnir Sjö" var stofnaður með alsherjar veisluhöldum ( 2 bjórum ) í aftakaveðri á Fimmvörðuhálsi fyrr í sumar.....Markmið okkar er að ganga og kjafta og skríða upp á a.m.k. eitt stórt fjall á ári....

Mig hefur LENGI vel langað upp á Keili ( sem er ekki stórt fjall ) en það vill enginn koma með mér ;(
Sumir halda að Keilir sé eldvirkt fjall og þora því ekki, aðrir segja að lausamölin sé "möl dauðans" og svo eru það þeir sem einfaldlega hafa alltaf góðar afsakanir. Hér með lýsi ég eftir göngufélaga sem er til í að kanna hvað Keilir hefur upp á að bjóða!
Jæja..ég er hætt....annars er ég í djúpum # $&!!......

p.s..
Pabbi fékk eina af "F" listanum frá okkur systkinunum og svo voru það auðvitað " B" gjafir frá öðrum...