27.10.03

Djö...var virkilega búin að skrifa leiðinlegan pistil og hann bara hvarf!!!:..

Allavega það sem ég vildi sagt hafa...í hnitmiðuðu máli

A) Bókhlaðan er staðurinn,læri ekki heima,neyðist til þess að hanga þar,finn mér afsakanir heima og er búin að þrífa fyrir næstu 2 jól.

B) Á ekkert líf,vorkenni mér,fæ aðra til þess að vorkenna mér,á það ekki skilið,gerist svo djörf og heimta að fólk semji um mig vísubrot.

C) Mæli með því að ef maður á ekki líf,lifa lífi vina sinna SÉRSTAKLEGA ef þeir eiga bræður í útlöndum sem hægt er að ,,stalka".

D)Það er ekkert í d dálkinum af því að núna er pásan mín búin og það er synd því ég nenni ekki að læra því ég er löt og langar heim að þrífa...