24.10.03

Jáhá....
Þetta er bara algjörlega glatað...Ég er búin að vera trú og trygg mínum einhleypu vinkonum í fjöööölda ára...og svo bara sting sting og bang bang beint í bakið...ÞÆR ERU KOMNAR Á FAST...HRIFNAR...ERU AÐ DEITA...VOÐA GAMAN.....right!...eða búa úti í útlöndum.......

Að vísu dreymdi mig skrítinn draum í gær! ( skipti um gír en þetta tengist!)

Einhver vinkona mín,þekkti hana að vísu ekki en ég vissi að hún væri vinkona mín, var að taka borða úr hárinu mínu ( sem er voða sítt og sætt ) en borðinn var fastur...svo hún ákvað að klippa hann í burtu. En!!!!! ta ta ta dammmm...ÞEGAR hún gerði það....þá tók hún LOKK MEÐ...og ekkert smá síður og sætur lokkur með liðum....og ég varð náttúrlega...ohh...fáránlegt...einn stuttur lokkur og allir aðrir síðir..og ég að safna fyrir brúðkaupið (það var ekki með í draumnum...en bara ég er að safna fyrir brúðkaupið í raunheimi)..

En það var ekkert við því að gera...enda hún vinkona mín ( þetta er ég allt að hugsa í draumnum) EN EN EN.....hún tekur lokkinn og felur hann og ætlar ekki að láta mig vita að hún hafi ÓVART klippt hann í burtu ( ok nú eruð þið að pæla...what...en þetta er draumur...ég hef örugglega bara séð með hnakkanum,verið spegill eða eitthvað allavega vissi ég að lokkurinn var farinn okey!!! ).....

Nú ég fór í hárgreiðslu í gær ( þegar Berglind segir hárgreiðslu þá er hún ekki að tala um hárGREIÐSLU) heldur bara klippingu eða dúllumhúll...og og og ...hvað annað en að bera drauminn undir konurnar..þær eru jú HÁRgreiðsludömur og minn draumur gekk út á HÁR....

Ein þeirra er víst voða góð að ráða svona...svona norn...( ég dýrka nornir).....og hún sagð...SLæmt....þetta er SLæmt...voða SLæmt...og ég bara...DAUÐI?????....,,Neeeiii..." sagði hún....,,En slæmt" og svo sagði hún ekkert meira...í laaangan tíma....og ég sat bara stirði í stólnum með Séð og Heyrt í höndunum og engan lífsvilja.....svo loks talaði völvan!!....

,, Þetta er slæmt...en ekkert svo slæmt...bandið styrkir þetta...var þetta einn lokkur,tveir eða þrír...." og ég man ekki betur en að þeir hafi verið þrír....þó ég tali um einn sko...einn breiður lokkur með þremur liðum ( eruð þið búin að missa áhugann?? það er point í þessu sko ) ALLAVEGA....

Völvan/Nornin ,, Vinkonur þínar eiga eftir að bregðast þér.....ekkert svo slæmt...gæti verið verra"......

Einmitt...draumurinn er orðin að veruleika....svona hratt líka..mar....varla að mar gæti undirbúið sig..!!!!

Ems er horfin á vit DDDDDD-rauma manns....
Brynka er horfin á vit DDDDDDDD-8-a
Ladý-inn er úti í útlöndum....

og hvað eru þær margar??????? ha?? EINMITT...ÞRÍR LIÐIR...Sætir og síðir líðir.....

Ég sagði ykkur að sagan hefði point!