8.10.02

" LEIÐARVÍSIR Í ÁSTAMÁLUM - Fyrir ungar stúlkur - Madam Tobba
Kafli 7- Að lita andlitið

" Það virðist færast í vöxt, að konur liti andlit sitt með ýmsu móti og æfinlega í þeim tilgangi að sýnast fallegri en þær eru í raun og veru ( ó... : / ). En nú skal eg segja þér eitt: Andlit þitt er svo fallegt frá skaparans hendi ( *roðn* takk..Madam Tobba... ) - þó að þú sért óánægð með það ( ha...ég??? ) - að þú getur eigi gert það fallegra með gervilitum ( "sminki" ). Hann hefir engan skapað svo ljótan og áreiðanlega ekki ætlast til þess, að nein af dætrum hans færi að mála sig í framan. ( Hmm...mér er spurn...stendur eitthvað um þetta í Biblíunni...)Þú getur með mörgu móti varðveitt fegurð þína,en til "sminksins" máttu aldrei grípa. ( ó vei ó vei..ég fer til helvítis..... þar sem fjörið er!!!! jíbbbíiii )

Lauslætiskonan - sem er litljót ( hehehehe ) á að hafa einkarétt til að "sminka" sig. Þú skalt aftur á móti bera gott og litlaust "eréme" ( eeeehhhrréma..eeehhkrem hvað?? ) á andlit þitt og núa eða strjúka andlitsvöðvana um leið. Það heldur húðinni vel mjúkri og kemur í veg fyrir allar hrukkur,sem sett gætu skugga á fegurð þína.( hnuss....fordómar á hrukkur! )
Þú mátt einnig nota eitt af góðu andlitsdufti ("púðri" ), en það má ekki vera áberandi.

úff þar höfum við það .....og það harkalega frá Madam Bitch!!!......VIÐ ERUM ALLAR Litljótar lauslætiskonur!!!

Frekar sjokkerandi kafli fyrir konur heimsins!!!...ég er bara döpur....en en en....kannski er von í 8.kafla sem fjallar um Ilmvötn!!...þó...kannski ekki....