26.6.06

Já já ég lélegur bloggari og allt það!
Þegar maður hefur ekki skrifað svona lengi þá getur verið erfitt að koma sér í gang....Hmm....hvaða skoðun hef ég haft undanfarið...

Ég hef haft öfgafullar pólitískar skoðanir í kjölfar kosningaúrslitanna...en nenni ekki að fjalla um það hér og nú.

Ég hef haft áhugaverða skoðun á íslenska veðurfarinu og tek undir með Cintamani...VEÐURFAR ER HUGAFAR!

...Ég hef fengið hrikalega innsýn á íslenska heilbrigðiskerfið og mun hér eftir hafa mjög sterka skoðun og EFAST um allt sem fólkið í hvítu sloppunum segir og gerir.

Ég er enn á þeirri skoðun að Silvía Nótt hafi verið landinu til sóma á grískri grundu þrátt fyrir allt furðulega fjölmiðlafárið sem fylgdi í kjölfar ósigurs snótinnar fögru.

...Umfram allt ég hef haft skoðun og það er nú góðs viti...

Katan beilaði á heimför sinni og kemur nú eftir 3 daga!!! Jibbí...við ætlum að ferðast saman í sumar með spánverjalingum og elda góðan mat og krydda hann með furðusögum um land og þjóð á ferðaflakki um fagra staði.

Ég er búin með skólann!! þ.e. alla áfanga og á nú bara eftir lokaverkefnið! Sökum alvarlegrar leti hefur hugmyndavinna legið í dvala undanfarið en það á heldur betur að bretta upp ermar næstu daga og hella sér í verkefnavinnu enda markmiðið að klára þetta í október.

Annars bið ég ykkur að bjóða nýjan félaga velkominn á síðuna mína en það er hinn gudómlega hæfileikaríki Brylli. Mæli eindregið með síðunni hans.

Kveð að sinni....